Frost
1.000 kr.
Frost er tveggja hespu sjal úr tveim ólíkum týpum af garni. Dúnmjúkt og kósý til að ilja eigandanum yfir kaldasta tíma ársins.
Í frostinu myndast oft munstur hér og þar sem heilla mig alltaf uppúr skónum. Munstrið er ekki hugsað með mikla kontrasta í huga, helst einlitt þar sem munurinn á garntegundunum fær að njóta sín en það virkar líka mjög vel úr ólíkum litum.
Upprunalega sjalið er úr garni í sport grófleika, c.a. 100gr/300m
Ég prjónaði það nýlega úr Merino silki DK í lit A sem er 100gr/225 m og Fiðu í lit B sem er 50gr/300m.
Litur A dugði ekki alveg alla leið svo ég felldi af eftir 6 endurtekningar í loka kaflanum í stað 8.
Vörunúmer:
EL1155
Flokkar: Prjóna uppskriftir, Sjöl
