Eldhúsverkin
800 kr.
Sjalið er prjónað á hlið (ekki að ofan og niður eða öfugt). Áður en kantur er prjónaður eru teknar upp lykkjur á hinni hliðinni og prjónað áfram þannig.
Nafnið á sjalinu sprettur upp úr verkefninu Tilraunaeldhúsið. Aðal liturinn er hluti af því verkefni sem er í gangi í Garnbúð Eddu. Stutta lýsingin: Litari fær ljósmynd í hendurnar og túlkar í garn…. Vinna í Tilraunaeldhúsinu=Eldhúsverkin 😀
Í sjalið þarf eina hespu af merino garni sem er c.a. 400m á 100 gr. og ein af mohair. Lítil 25 gr /210m dugar af mohairinu 😀
Garnið í sjalinu á myndinni er frá Today I feel og liturinn heitir : Tilraunaeldhúsið #4
Mohair garnið í kantinum er frá Systrabönd og liturinn heitir: Appelsín
Vörunúmer:
EL016
Flokkar: Prjóna uppskriftir, Sjöl