Prjónalöggusokkasett
4.790 kr.
Jólaprjónalöggugarn
Sérlitað prjónalöggu garn í samvinnu við Hex hex dyeworks. Garnið er litað samkvæmt læknisráði og er þáttur í sálrænni meðferð löggunnar. Það fer ekkert sérlega vel með hana að reiðast yfir öllu mögulegu sem hefur verið soldið þemað í hennar lífi til þessa. Garnið er fyrsti þáttur í meðferðarúrræði löggunnar með von um örlítið lækkaðan blóðþrýsting.
Vandamálið sem unnið er á í þetta skiptið er orðið SPEKKLUR… sem er stundum notað í dag yfir litaslettur í handlituðu garni. HÚN HATAR ÞAÐ! Annað eins orðskrípi hefur hún ekki heyrt!
Uppskriftina af meðferðarsokkunum er að finna hér.
Þú getur líka fengið verkefnapoka sem passar vel fyrir sokkaverkefni.. og sérstaklega þetta sokkaverkefni hér
Pakkinn inniheldur
Eina 100 gr hespu og eina mini hespu.
Garn: 75% Superwash Merino Ull og 25% nylon
Þyngd: 100g og 20g
Lengd: 423m og 84m
Uppbygging: 4ply / fingering
Tillaga að prjóna/nála stærð: 2.5mm – 3.5mm
Þvottaleiðbeiningar: Handþvottur uppúr volgu/köldu vatni. Leggið flatt á handklæði til þerris.
Uppselt