Sveina

800 kr.

Uppskrift af húfunni Sveina sem var unnin í samvinnu við Sveinu hjá Garn í gangi á Akureyri

Prjónar:
4 mm hringprjónar, 40 cm og sokkaprjónar til að klára toppinn (ef þú prjónar laust má alveg fara niður í 3,5 mm eða eins ef þú prjónar mjög fast má fara í 4,5 mm )
Prjónamerki fyrir byrjun umferðar.

prjónfesta
22 lykkjur í mynstri = 10 cm

STÆRÐIR
LÍTIL (STÆRRI, STÓR)
Stærðirnar mætti túlka þannig: Krakka (dömu, herra).
Ummál (sem teygist svo á): 47,5 cm (51 cm, 54,5 cm). (Mín húfa er í miðju stærðinni og höfuðmál mitt er 57cm og hún er alls ekki þröng)

Garn:
Garn frá Garn í gangi (grænblátt sýnishorn)
Litur A: Kaos organic merino notað með einum þræði af Kaos brushed alpaca
Litur B: Lang frida

Garn frá Garnbúð Eddu
Sitthvor liturinn af Fínerí DK 50 gr (112m)(ljóst með grænu sýnishorn)

Eða

Fínerí DK sem lit A (50 gr)og setja saman þráð af Fínerí (ca 25 gr duga) og Fiðu (ca 17gr duga) sem lit B. ( dökkur grunnur, brúnt mynstur)

Vörunúmer: UELG09 Flokkar: ,