Línuhúfa
800 kr.
Húfan er prjónuð í hring frá botni og upp. Fyrst er prjónað einlitt sem er brotið inn í húfuna til að hafa tvöfalt yfir eyrun. Svo er prjónað aðeins styttra eftir mynstri til að einliti parturinn verða eins og smá kantur neðst á húfunni. Uppfitjuðu lykkjurnar eru teknar upp og prjónaðar saman við vinnslu lykkjurnar um leið og prjónað er áfram í mynstri.
EFNI OG ÁHÖLD
Garn:
3x Fínerí DK 50 gr (112m)
Litir í sýnishorni
Litur A: Móri
Litur B: Yndisauki #Jörð
Litur C: Ananas hlunkur
áhöld:
3 mm hringprjónar, 40 cm
4 mm hringprjónar, 40 cm og sokkaprjónar til að klára toppinn (ef þú prjónar laust má alveg fara niður í 3,5 mm eða eins ef þú prjónar mjög fast má fara í 4,5 mm )
Prjónamerki fyrir byrjun umferðar.
prjónfesta
22 lykkjur í mynstri = 10 cm
STÆRÐIR
LÍTIL (STÆRRI, STÓR)
Stærðirnar mætti túlka þannig: Krakka (dömu, herra).
Ummál (sem teygist svo á): 47,5 cm (51 cm, 54,5 cm). (Mín húfa er í miðju stærðinni og höfuðmál mitt er 57cm og hún vel þétt við eyru)