Hrabby – Kósý útgáfan
1.300 kr.
Hrabby – Kósý útgáfan er grófari útgáfa af Hrabby peysunni. Peysan er prjónuð í hring að ofan og niður í tvíbanda mynstri. Athugið að í tvíbanda mynstri hafa flest tilhneiginu til þess að prjóna fastar en vanalega og í peysu sem er tvíbanda alla leið niður þarf að fylgjast vel með prjónfestu. Einnig er gott að passa vel uppá að bandið sem ferðast milli lita aftan á verkinu sé ekki of strekkt…. Æfingin skapar meistarann þar.
Stærðir: 1 (2, 3, 4, 5, 6, 7)
ATH: stærðir 8-10 eru til en hafa ekki verið prufuprjónaðar. Brjóstummál þeirra stærða er: 141, 148, 155.5 cm. Ef þú hefur áhuga á að prufuprjóna stærri stærðirnar máttu endilega hafa samband við garnbudeddu@gmail.com.
Brjóst ummál peysu: 91.5 (99, 106, 113, 120, 127, 134 )cm – Hreyfivídd 5-10 cm
Garn í sýnishornum:
Garn í gangi – Brisa – 42% bómull,/35% alpakka/ 23% ull – 50gr/110m
Ef þú ert að velta fyrir þér garni frá mér er ég að prjóna eina úr Fínerí og Fiðu haldið saman og kemur einstaklega vel út.
Garnmagn í metrum:
Litur A: 534 (578, 619, 660, 701, 742, 783) m
Litur B: 178 (193, 206, 220, 234, 247, 261) m
Litur C: 66 (71, 76, 81, 86, 91, 96) m
Prjónfesta:
Tvíbanda munstur 17 l = 10 cm á prjóna 5.5 mm
Áhöld:
Hringprjónar
4,5 mm, 40 cm fyrir stroff í hálsmáli
4,5 mm, 80 cm fyrir stroff á bol
5,5 mm – 40 cm fyrir ermar og byrjun á berustykki
5,5 mm – 80 cm fyrir beustykki og bol
