Fura
1.000 kr.
Aðventusamprjón Garnbúðar Eddu hefst þann 30.nóvember 2023
Ef þú kaupir uppskriftina fyrir 30.nóvember færðu vettlingana Þöll frítt með.
Uppskriftirnar færðu svo sendar að morgni 30.nóvember.
Til þess að vera tilbúin/nn með garn eru hér upplýsingar um allt sem þarf.
Hér getur þú keypt pakkningar í samprjónið
EFNI OG ÁHÖLD
Pop frá Hip Knit Shop, 50 gr/112 m Eða Pure frá WYS, 50 gr/112m Eða annað garn í sama grófleika.
2 litir, 1 dokka af hvorum lit (dugar í allar stærðir)
Ef þú vilt tvöfalda stroffið fyrir uppábrot sem fer ekki yfir millimynstrið þarf meira af þeim lit.
40 cm hringprjónar, 3 mm og 4mm.
Prjónfesta
26 lykkjur í stroffi (3sl, 1 br) með 3mm prjónum = 10 cm.
24 lykkjur, slétt prjón í mynstri með 4mm prjónum = 10 cm.
Stærðir
2-4 ára / 5-7 ára /lítil fullorðins / stór fullorðins