Skári

800 kr.

Húfan er prjónuð fram og til baka í garðaprjóni (s.s. Slétt á réttu og slétt á röngu). Húfan er prjónuð þvert, eða s.s. upp og niður í raun og kollurinn mótast með stuttum umferðum í gegnum alla húfuna. Munstrið er prjónað með myndprjóni sem er alls ekki flókið og skiptir bara máli hvernig skipt er á milli lita í umferðum og er sýnt hér fyrir neðan.
Áhöld
3.5mm hringprjónn, 60 cm eða lengri, eða sú stærð sem þarf til að ná prjónfestu.
Garn
Prjónað er með garni í DK grófleika þar sem miðað er við að ca 100gr eru cm 225 m.
Litur A: 47gr (í sýnishorni: POP frá Hip Knit Shop: Milk and Cookies) (41 gr í styttri útgáfu)
Litur B: 5 gr (í sýnishorni: POP frá Hip Knit Shop: Chocolate toffee)
Litur C: 12 gr (í sýnishorni: POP frá Hip Knit Shop: Salted caramel)
Litur D: 6 gr (í sýnishorni: Merino DK frá Vatnsnes Yarn: Karol)
Litur E: 10 gr (í sýnishorni: Milburn DK frá Eden Cottage: Steel)(Má sleppa í kollhúfu)
Prjónafesta
20 L og 42 umferðir ígarðaprjóni (21 garður) = 10 x10 cm

Vörunúmer: UELG07 Flokkar: ,