Þinur
1.500 kr.
Peysan Þinur er hönnuð sérstaklega fyrir samprjón Garnbúðar Eddu sem var í júlí 2023. Samprjónið bar nafnið Jól í júlí og byrjaði með risa uppfitji partýi í Hjarta Hafnarfjarðar í samstarfi við Bæjarbíó.
EFNI OG ÁHÖLD
Le petit lambswool (50gr/249m) og Le petit silk & mohair (25gr / 210m) haldið saman.
Grænt sýnishorn
Litur A: Forest green í lambswool og dark green í petit silk haldið saman.
Litur B: Candy bonbon í lambsull og rose grey í petit silk haldið saman.
4 og 5 mm hringprjónar, 80 cm eða prjónar sem þarf til að ná prjónfestu.
5mm hringprjónar, 40 cm (í hálsmál og ermar)
Sokkaprjónar í stroff á ermum ef ekki er notuð magic loop aðferðin
1 prjónamerki fyrir byrjun umferðar
STÆRÐIR OG GARNMAGN
Stærðir: 1 (2, 3, 4, 5, 6, 7, 8)
Ummál brjóst (ummál peysu): 85 (93, 102, 110, 119, 129, 139, 149)
Aðallitur metrar (x2 ef notaðir eru 2 þræðir): 574 (636, 697, 752, 807, 875, 943, 1012)
Aukalitur Metrar (x2 ef notaðir eru 2 þræðir): 70 (78, 86, 92, 99, 107, 116, 124)
PRJÓNFESTA
16 lykkjur slétt = 10 cm.
ATHUGIÐ! Prjónastærð er valin út frá prjónfestu. Prjónfestan í þessu verkefni er: 16 lykkjur yfir 10 cm. Ef fast er prjónað er mælt með prjóni nr. 5,5 og ef laust er prjónað er mælt með prjóni nr. 4,5.