Áskriftarpakki apríl 2024 M/POKA
19.870 kr.
APRÍL PAKKI MEÐ POKA
Pakki apríl mánaðar verður í fínni kantinum … svona smá dekurpakki.
Litirnir á myndinni eru litirnir sem ég mun nota í hespurnar…
Hespurnar verða þrjár úr nýjum grunni sem inniheldur Yak og silki… sem er mýkra en orð fá lýst.
Hver hespa er 50gr/200m
Með fylgir uppskrift af einföldum trefli sem er fullkominn fyrir vorblíðuna framundan og gott ef það er ekki hægt að kalla hann Punt trefilinn…. svona til að punta sig á góðveðurs dögum …
Þar sem ég elska að mála verkefnapoka er valmöguleiki að bæta einum slíkum við sem ég mun mála, að sjálfsögðu í stíl við garnið og verða þeir í takmörkuðu upplagi eins og áður.
…og með öllum pökkum verða prjónamerki í stíl sem henta í verkefnið.
PAKKINN VERÐUR AFHENTUR / SENDUR ÚT 4.APRÍL
Uppselt