Kvistur
800 kr.
Húfan er prjónuð að neðan og upp. Byrjað er á snúruuppfiti, eftir það er tengt í hring og farið beint í að prjóna eftir mynstri 1 alla leið uppá topp.
EFNI OG ÁHÖLD
Garn
Litur A = Eden Cottage, Pendle chunky, 100 gr/100 m
Litur í sýnishorni: Silver Birch
Litur B = Hip knit shop, Hip mohair, 25 gr /212 m notað þrefalt. Litur í sýnishorni: Emerald green
40 cm hringprjónn og sokkaprjónar, 5 mm (ef þú prjónar mjög laust má alveg fara niður í 4,5 mm
eða eins ef þú prjónar mjög fast má fara í 5,5 mm )
1 prjónamerki fyrir byrjun umferðar
prjónfesta
17 lykkjur í sléttu prjóni = 10 cm.
STÆRÐIR
Lítil fullorðins / stór fullorðins