MarsHespan-Forsala
3.990 kr. – 4.490 kr.Price range: 3.990 kr. through 4.490 kr.
MARSHESPAN
Þriðja litun af tólf árið 2026… allir mánuðir ársins fá sinn lit!
Ég mun lita hvern mánuð á þremur garn grunnum…. var upprunalega planið!
Fór í 4 grunna í febrúar og býð nú uppá 5 mismunandi garngrunna í mars: Fínerí, Fínerí DK, Fiðu, Merino silki fisband og Merino silki fínband (Sjá innihald hér fyrir neðan).
Þú getur tryggt þér eintak hér í forsölu áður en hún fer í litun þar sem mánaðarhespurnar verða litaðar í takmörkuðu upplagi.
Mars liturinn er tileinkaður góðri vinkonu sem á afmæli í byrjun mars og elskar bláann…
Ég mun alltaf setja inn teikningu af hespu hvers mánaðar þegar forsala fer af stað svo þú hafir einhverja hugmynd um hvað þú ert að kaupa ef þú vilt vera alveg viss um að ná eintaki… eða þú getur beðið eftir myndum af hespunum tilbúnum og náð þér í eintak þá áður en þær klárast…
Marshespurnar verða tilbúnar til afhendingar á Garnival þann 1.mars/eða sendar af stað þriðjudaginn 3.mars
Fínerí er undurmjúk merínó ull í fínbands (fingering) grófleika. Tilvalið í sokka, peysur, húfur, sjöl, trefla og bara allt sem þig langar að prjóna.
85% merínó ull (superwash) og 15% Nylon
Fínband 100g/400m
Fínerí DK er undurmjúk merínó ull í léttbands (Dk) grófleika. Tilvalið í sokka, peysur, húfur, sjöl, trefla og bara allt sem þig langar að prjóna.
85% merínó ull (superwash) og 15% Nylon
Léttband 100g/224m
Fiða er undursamlega mjúkt og fallega loðið. Pínu villt …Tilvalið í sjöl, peysur, vettlinga… bæði sem aukaþráður og einn og sér.
75% Brushed baby suri alpacca og 25% Mulberry Silki
Fisband (lace) 50g/300m
Merino Silki Fisband er undursamlega mjúkt og glóir eins og gull. Mikið notað sem aukaþráður líkt og mohair en líka dásamlegt eitt og sér í allt milli himins og jarðar. Ég er t.d. að nota þetta tvöfalt í ungbarnasett og held ég hafi bara ekki snert neitt dásamlegra. Géggjað í staðin fyrir mohair í peysuna Kusk til dæmis… og þá með Fínerí á móti.
75% merínó ull (sw) / 25% Mulberry silki
100g/800m
Grófleiki: fisband (lace)
Merino Silki singles er undursamlega mjúkt og fallega slétt og bústin áferð (ef það meikar sens). Fullkomið í hálsklút, sjal, peysu og bara allt milli himins og jarðar.
75% merínó ull (sw) / 25% Mulberry silki
100g/400m
Grófleiki: fínband (fingering)
Nánar
| Þyngd | Á ekki við |
|---|---|
| Veldu garntegund |
Fínerí ,Fínerí DK ,Fiða ,Merino silki fisband ,Merino silki singles |
Aðrar vörur í sama flokki
Fínerí litað eftir pöntun
3.990 kr.

Litla lambsullin