Yndisauki
Yndisauki Price range: 3.990 kr. through 4.490 kr.
Back to products

Júlí-Hespan FORSALA

Price range: 3.990 kr. through 4.490 kr.

Sjöunda litun af tólf árið 2026… allir mánuðir ársins fá sinn lit!

Ég mun lita hvern mánuð á þremur garn grunnum…. VAR upprunalega planið!

Fór í 4 grunna í febrúar og býð nú uppá 6 mismunandi garngrunna : Fínerí, Fínerí DK, Fiðu, Merino silki fisband og Merino silki singles, Merino silki DK  (Sjá innihald hér fyrir neðan).

Þú getur alltaf tryggt þér eintak hér í forsölu áður en hver mánuður fer í litun þar sem mánaðarhespurnar verða litaðar í takmörkuðu upplagi til að byrja með.

Júlí liturinn er innblásinn af uppáhalds blómunum mínum, Lúpínunni sem er í fullum blóma akkúrat núna. Það eru einhverjir töfrar sem eiga sér stað í höfði mínu þegar ég horfi yfir lúbínu breiðurnar í morgun göngunni minni.

Ég mun alltaf setja inn teikningu af hespu hvers mánaðar þegar forsala fer af stað svo þú hafir einhverja hugmynd um hvað þú ert að kaupa ef þú vilt vera alveg viss um að ná eintaki… eða þú getur beðið eftir myndum af hespunum tilbúnum og náð þér í eintak þá áður en þær klárast…

Hespurnar verða sendar út/afhentar eigi síðar en 1.júlí áður en ég fer í smá sumarfrí. Þess vegna gæti orðið einhver bið í næstu litun.

Fínerí er undurmjúk merínó ull í fínbands (fingering) grófleika. Tilvalið í sokka, peysur, húfur, sjöl, trefla og bara allt sem þig langar að prjóna.

Innihald:85% merínó ull (superwash) og 15% Nylon
Grófleiki: Fínband 100g/400m

Prjónastærð: 2.5mm – 4mm

Fínerí DK er undurmjúk merínó ull í léttbands (Dk) grófleika. Tilvalið í sokka, peysur, húfur, sjöl, trefla og bara allt sem þig langar að prjóna.

Innihald:85% merínó ull (superwash) og 15% Nylon
Grófleiki: Léttband 100g/224m

Prjónastærð: 3.5mm – 4.5mm

Fiða er undursamlega mjúkt og fallega loðið. Pínu villt …Tilvalið í sjöl, peysur, vettlinga… bæði sem aukaþráður og einn og sér.

Innihald: 75% Brushed baby suri alpacca og 25% Mulberry Silki
Grófleiki: Fisband (lace) 50g/300m

Prjónastærð: 3mm – 5mm

Merino Silki Fisband er undursamlega mjúkt og glóir eins og gull. Mikið notað sem aukaþráður líkt og mohair en líka dásamlegt eitt og sér í allt milli himins og jarðar. Ég er t.d. að nota þetta tvöfalt í ungbarnasett og held ég hafi bara ekki snert neitt dásamlegra. Géggjað  í staðin fyrir mohair í peysuna Kusk til dæmis… og þá með Fínerí á móti.

75% merínó ull (sw) / 25% Mulberry silki
100g/800m
Grófleiki: fisband (lace)

Prjónastærð: 2.5mm – 4mm

Merino Silki singles er undursamlega mjúkt og fallega slétt og bústin áferð (ef það meikar sens). Fullkomið í hálsklút, sjal, peysu og bara allt milli himins og jarðar.

Innihald: 75% merínó ull (sw) / 25% Mulberry silki
100g/400m
Grófleiki: fínband (fingering)

Prjónastærð: 3mm – 4mm

Merino Silki dk er undursamlega mjúk blanda af merino ull og silki. Falleg glansandi áferð. Fullkomið í peysur, sjöl, kraga, húfur og vettlinga. Garnið fellur sérstaklega vel og prjónast einskalega vel bæði í gataprjóni og tvíbanda.

Tilvalið í peysur eins og Rakel, Fríðu og Valmúa svo eitthvað sé nefnt.

75% merínó ull (sw) / 25% Mulberry silki

100g/225m

Grófleiki: léttband (DK)

Prjónastærð: 3.5mm – 4.5mm

Nánar

Nánar

ÞyngdÁ ekki við
Veldu tegundFínerí, Fínerí DK, Merino silki fisband, Merino silki singles, Merino silki DK, Fiða