Apríl-Hespan Forsala
3.990 kr. – 4.490 kr.Price range: 3.990 kr. through 4.490 kr.
Fjórða litun af tólf árið 2026… allir mánuðir ársins fá sinn lit!
Ég mun lita hvern mánuð á þremur garn grunnum…. var upprunalega planið!
Fór í 4 grunna í febrúar og býð nú uppá 5 mismunandi garngrunna : Fínerí, Fínerí DK, Fiðu, Merino silki fisband og Merino silki DK (Sjá innihald hér fyrir neðan).
Þú getur alltaf tryggt þér eintak hér í forsölu áður en hver mánuður fer í litun þar sem mánaðarhespurnar verða litaðar í takmörkuðu upplagi.
Apríl liturinn er tileinkaður voninni um að vorið sé rétt á næsta leiti. Eitthvað ogguponsu grænt og bleikt að reyna að brjótast upp úr jörðinni.
ATH Þetta er forsala, apríl hespurnar verða tilbúnar til afhendingar / sendar af stað eigi síðar en 8.apríl
Ég mun alltaf setja inn teikningu af hespu hvers mánaðar þegar forsala fer af stað svo þú hafir einhverja hugmynd um hvað þú ert að kaupa ef þú vilt vera alveg viss um að ná eintaki… eða þú getur beðið eftir myndum af hespunum tilbúnum og náð þér í eintak þá áður en þær klárast…
Fínerí er undurmjúk merínó ull í fínbands (fingering) grófleika. Tilvalið í sokka, peysur, húfur, sjöl, trefla og bara allt sem þig langar að prjóna.
85% merínó ull (superwash) og 15% Nylon
Fínband 100g/400m
Prjónastærð: 2.5mm – 4mm
Fínerí DK er undurmjúk merínó ull í léttbands (Dk) grófleika. Tilvalið í sokka, peysur, húfur, sjöl, trefla og bara allt sem þig langar að prjóna.
85% merínó ull (superwash) og 15% Nylon
Léttband 100g/224m
Prjónastærð: 3.5mm – 4.5mm
Fiða er undursamlega mjúkt og fallega loðið. Pínu villt …Tilvalið í sjöl, peysur, vettlinga… bæði sem aukaþráður og einn og sér.
75% Brushed baby suri alpacca og 25% Mulberry Silki
Fisband (lace) 50g/300m
Merino Silki Fisband er undursamlega mjúkt og glóir eins og gull. Mikið notað sem aukaþráður líkt og mohair en líka dásamlegt eitt og sér í allt milli himins og jarðar. Ég er t.d. að nota þetta tvöfalt í ungbarnasett og held ég hafi bara ekki snert neitt dásamlegra. Géggjað í staðin fyrir mohair í peysuna Kusk til dæmis… og þá með Fínerí á móti.
75% merínó ull (sw) / 25% Mulberry silki
100g/800m
Grófleiki: fisband (lace)
Merino Silki dk er undursamlega mjúk blanda af merino ull og silki. Falleg glansandi áferð. Fullkomið í peysur, sjöl, kraga, húfur og vettlinga. Garnið fellur sérstaklega vel og prjónast einskalega vel bæði í gataprjóni og tvíbanda.
Tilvalið í peysur eins og Rakel, Fríðu og Valmúa svo eitthvað sé nefnt.
75% merínó ull (sw) / 25% Mulberry silki
100g/225m
Grófleiki: léttband (DK)
Prjónastærð: 3.5mm – 4.5mm
Nánar
| Þyngd | Á ekki við |
|---|---|
| Veldu garntegund | Fínerí, Fínerí DK, Merino silki fisband, Merino silki DK, Fiða |
Aðrar vörur í sama flokki
Febrúar-Hespan
3.990 kr. – 4.490 kr.Price range: 3.990 kr. through 4.490 kr.
