Júní-Hespan FORSALA
3.990 kr. – 4.490 kr.Price range: 3.990 kr. through 4.490 kr.
Sjötta litun af tólf árið 2026… allir mánuðir ársins fá sinn lit!
Ég mun lita hvern mánuð á þremur garn grunnum…. VAR upprunalega planið!
Fór í 4 grunna í febrúar og býð nú uppá 6 mismunandi garngrunna : Fínerí, Fínerí DK, Fiðu, Merino silki fisband og Merino silki singles og í fyrsta skipti 100% Merino sem fær nafnið 100% Fínerí (Sjá innihald hér fyrir neðan).
Þú getur alltaf tryggt þér eintak hér í forsölu áður en hver mánuður fer í litun þar sem mánaðarhespurnar verða litaðar í takmörkuðu upplagi.
Júní liturinn varð til í dásamlegri ferð minni til Ítalíu í maí þar sem ég var umvafin dásamlegum konum og umhverfi. Ferðin einkenndist af hamingju, vináttu og einhverri endalausri fallegri orku sem náði að brjótast út í hespu mánaðarins 🧶
Ég mun alltaf setja inn teikningu af hespu hvers mánaðar þegar forsala fer af stað svo þú hafir einhverja hugmynd um hvað þú ert að kaupa ef þú vilt vera alveg viss um að ná eintaki… eða þú getur beðið eftir myndum af hespunum tilbúnum og náð þér í eintak þá áður en þær klárast…
Hespurnar verða sendar út/afhentar eigi síðar en 5.júní
Fínerí er undurmjúk merínó ull í fínbands (fingering) grófleika. Tilvalið í sokka, peysur, húfur, sjöl, trefla og bara allt sem þig langar að prjóna.
Innihald:85% merínó ull (superwash) og 15% Nylon
Grófleiki: Fínband 100g/400m
Prjónastærð: 2.5mm – 4mm
100% Fínerí er undurmjúk merínó ull í fínbands (fingering) grófleika. Tilvalið í peysur, húfur, sjöl, trefla og bara allt sem þig langar að prjóna.
Innihald: 100% merínó ull (superwash)
Grófleiki: Fínband 100g/400m
Prjónastærð: 2.5mm – 4mm
Fínerí DK er undurmjúk merínó ull í léttbands (Dk) grófleika. Tilvalið í sokka, peysur, húfur, sjöl, trefla og bara allt sem þig langar að prjóna.
Innihald:85% merínó ull (superwash) og 15% Nylon
Grófleiki: Léttband 100g/224m
Prjónastærð: 3.5mm – 4.5mm
Fiða er undursamlega mjúkt og fallega loðið. Pínu villt …Tilvalið í sjöl, peysur, vettlinga… bæði sem aukaþráður og einn og sér.
Innihald: 75% Brushed baby suri alpacca og 25% Mulberry Silki
Grófleiki: Fisband (lace) 50g/300m
Prjónastærð: 3mm – 5mm
Merino Silki Fisband er undursamlega mjúkt og glóir eins og gull. Mikið notað sem aukaþráður líkt og mohair en líka dásamlegt eitt og sér í allt milli himins og jarðar. Ég er t.d. að nota þetta tvöfalt í ungbarnasett og held ég hafi bara ekki snert neitt dásamlegra. Géggjað í staðin fyrir mohair í peysuna Kusk til dæmis… og þá með Fínerí á móti.
75% merínó ull (sw) / 25% Mulberry silki
100g/800m
Grófleiki: fisband (lace)
Prjónastærð: 2.5mm – 4mm
Merino Silki singles er undursamlega mjúkt og fallega slétt og bústin áferð (ef það meikar sens). Fullkomið í hálsklút, sjal, peysu og bara allt milli himins og jarðar.
Innihald: 75% merínó ull (sw) / 25% Mulberry silki
100g/400m
Grófleiki: fínband (fingering)
Prjónastærð: 3mm – 4mm
Nánar
| Veldu tegund | Fínerí, 100% Fínerí, Fínerí DK, Merino silki fisband, Merino silki singles, Fiða |
|---|
Aðrar vörur í sama flokki
Febrúar-Hespan
3.990 kr. – 4.490 kr.Price range: 3.990 kr. through 4.490 kr.
MarsHespan
3.990 kr. – 4.490 kr.Price range: 3.990 kr. through 4.490 kr.
