Maí-Hespan – FORSALA
3.990 kr. – 4.490 kr.Price range: 3.990 kr. through 4.490 kr.
SALAN Á MAÍHESPUNNI FÓR FRAMAR ÖLLUM VONUM SVO ÉG ÁKVAÐ AÐ SETJA HANA AFTUR Í FORSÖLU
Þú getur því tryggt þér hana í hvaða grunni sem er í næstu litun sem verður eftir 17.maí. Ég geri ráð fyrir því að senda hana út í síðasta lagi föstudaginn 22.maí.
Fimmta litun af tólf árið 2026… allir mánuðir ársins fá sinn lit!
Ég mun lita hvern mánuð á þremur garn grunnum…. VAR upprunalega planið!
Fór í 4 grunna í febrúar og býð nú uppá 5 mismunandi garngrunna : Fínerí, Fínerí DK, Fiðu, Merino silki fisband og Merino silki singles (Sjá innihald hér fyrir neðan).
Þú getur alltaf tryggt þér eintak hér í forsölu áður en hver mánuður fer í litun þar sem mánaðarhespurnar verða litaðar í takmörkuðu upplagi.
Maí liturinn er innblásinn af gullfallegu Cherry blossom trjánum sem blómstra svo fallega á þessum tíma árs… var svo heppin að fara tvær ferðir til Bretlands síðustu tvo mánuði og seinni ferðin var hin fagra Edinborg þar sem þessi tré voru út um allt í fallegum blóma.
Ég mun alltaf setja inn teikningu af hespu hvers mánaðar þegar forsala fer af stað svo þú hafir einhverja hugmynd um hvað þú ert að kaupa ef þú vilt vera alveg viss um að ná eintaki… eða þú getur beðið eftir myndum af hespunum tilbúnum og náð þér í eintak þá áður en þær klárast…
Hespurnar verða sendar út/afhentar eigi síðar en 7.maí
Fínerí er undurmjúk merínó ull í fínbands (fingering) grófleika. Tilvalið í sokka, peysur, húfur, sjöl, trefla og bara allt sem þig langar að prjóna.
Innihald:85% merínó ull (superwash) og 15% Nylon
Grófleiki: Fínband 100g/400m
Prjónastærð: 2.5mm – 4mm
Fínerí DK er undurmjúk merínó ull í léttbands (Dk) grófleika. Tilvalið í sokka, peysur, húfur, sjöl, trefla og bara allt sem þig langar að prjóna.
Innihald:85% merínó ull (superwash) og 15% Nylon
Grófleiki: Léttband 100g/224m
Prjónastærð: 3.5mm – 4.5mm
Fiða er undursamlega mjúkt og fallega loðið. Pínu villt …Tilvalið í sjöl, peysur, vettlinga… bæði sem aukaþráður og einn og sér.
Innihald: 75% Brushed baby suri alpacca og 25% Mulberry Silki
Grófleiki: Fisband (lace) 50g/300m
Prjónastærð: 3mm – 5mm
Merino Silki Fisband er undursamlega mjúkt og glóir eins og gull. Mikið notað sem aukaþráður líkt og mohair en líka dásamlegt eitt og sér í allt milli himins og jarðar. Ég er t.d. að nota þetta tvöfalt í ungbarnasett og held ég hafi bara ekki snert neitt dásamlegra. Géggjað í staðin fyrir mohair í peysuna Kusk til dæmis… og þá með Fínerí á móti.
75% merínó ull (sw) / 25% Mulberry silki
100g/800m
Grófleiki: fisband (lace)
Prjónastærð: 2.5mm – 4mm
Merino Silki singles er undursamlega mjúkt og fallega slétt og bústin áferð (ef það meikar sens). Fullkomið í hálsklút, sjal, peysu og bara allt milli himins og jarðar.
Innihald: 75% merínó ull (sw) / 25% Mulberry silki
100g/400m
Grófleiki: fínband (fingering)
Prjónastærð: 3mm – 4mm
Nánar
| Þyngd | Á ekki við |
|---|---|
| Veldu tegund | Fínerí, Fínerí DK, Fiða, Merino silki fisband, Merino silki singles |
Aðrar vörur í sama flokki
Apríl-Hespan
Febrúar-Hespan
3.990 kr. – 4.490 kr.Price range: 3.990 kr. through 4.490 kr.Janúarhespan
3.990 kr. – 4.490 kr.Price range: 3.990 kr. through 4.490 kr.
